Minns er að fara í prufu vegna Grease á þriðjudaginn...



....mjög gaman að fá að takast á við það og æfa mig fyrir það sem framtíðin á eftir að bera í skauti sér (skáldlega orðað ha

) ... ég veit reyndar ekkert hvað verður en þetta væri frábær sumarvinna.... eitt skref þó í einu og sjá svo hvað setur

Kemur sér reyndar ágætlega þessi tímasetning þar sem við erum búin að vera síðustu 2 vikurnar nær engöngu í söng og dans tímun

.... það hlýtur að hjálpa.
Annars allt gott af familíunni... allt í rólegheitunum, Kiddi minn var að koma úr skíðaferð .. fór með skólanum til Dalvíkur .. mikið gaman hjá þeim...fór í bíó í gær og svo ball í kvöld.... ég finn alveg vængina spretta á honum.... en bara gaman af þessum unglingsárum..gullárin
Emilía Þóra spilar eins og vindurinn á nýja flygilinn sinn og syngur hástöfum....svo er hún með ótrúlega meðfædda framkomuhæfileika...tekur uppá því að hneigja sig bara svona óumbeðin eftir flutninginn... hún á eftir að verða eitthvað stelpan
Styrmir er eins og hermaður um öll gólf.... kemst ótrúlega hratt með því að draga sig svona áfram ... farin að verða pínu hættulegur þar sem hann er að skoða hurðarnar og reyna að loka þeim...komin tími á að gera íbúðina skothelda af forvarnarbúnaði fyrir börn

.... og stækkar og stækkar .... alltaf jafn brosmildur þessi elska
Og af mér er bara gott að frétta... fíla skólann alveg í botn og kisa sér um félagsskapinn þegar kemur að kúra með einhverjum á nóttunni... og Emilía kemur mjög oft trítlandi yfir í mömmurúm

... notalegt hjá okkur stelpum

Góðar stundir